8.1.2008 | 15:33
Hverju skal trúa?
Sælt veri fólkið.
Þeir sem fara reglulega á fotbolti.net og gras.is hafa ef til vill tekið eftir því að alþjóðasamtök sparkspekinga og tölfræðinga, sem kalla sig IFFHS, hafa gert styrkleikalista yfir knattspyrnudeildir í heiminum. Landsbankadeildin lendir þar í 97. sæti. Í sætunum í kringum okkar ylhýru Landsbankadeild eru deildirnar í Víetnam og Kýpur sem teljast aðeins sterkari og deildirnar í Kazakhstan og Bosníu-Hersegovínu sem álitnar eru aðeins veikari. Það sem þó slær augað er að svo virðist vera að einungis séu efstu deildir landanna talið með. Það þarf engann snilling til að sjá að velflest liðin í næstefstudeild í Englandi og Spáni eru betri en liðin í Landsbankadeildinni. Sama stefna virðist vera hjá þessum samtökum þegar þeir raða upp félagsliðum eftir styrkleika. Þar komast fyrrum Íslandsmeistarar FH í 298. sæti ásamt Hammerby frá Svíþjóð, Real CD España San Pedro Sula frá Hondúras og FC TV MK Tallínn frá Eistlandi. Efsta liðið í næstefstu deild í Englandi, WBA, kemst ekki á listann.
Það er stór spurning hverjir þeir eru sem gera þennan lista. Eru þetta til dæmis atvinnublaðamenn og virtir tölfræðingar sem að búa til þennan lista eða er um að ræða almennari samtök. Mér finnst til að mynda ekkert sérstaklega professjónalt, ef ég má sletta, að hvergi á listanum sé að finna lið á borð við WBA, Watford, Bristol City, Stoke og Charlton úr ensku næstefstu deildinni og önnur svipuð lið úr næstefstu deildinni á Spáni en að FH Hafnarfjörður sé þar.... Auk þess sem að þeir eru ekkert besta knattspyrnulið á Íslandi. Valur er besta knattspyrnulið á Íslandi. Ef þið viljið skoða þetta betur má finna þessa lista á www.iffhs.de.
Fyrst ég er farinn að tala um Val má ég til að nefna nokkrar staðreyndir um árið 2007.
Íslandsmeistari í handbolta karla: Valur
Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna: Valur
Íslandsmeistari í knattspyrnu karla: Valur
Besti leikmaður handknattleikstímabilsins 2006-2007: Markús Máni Michaelsson Maude, leikmaður Vals
Besti leikmaður Landsbankadeildarinnar: Helgi Sigurðsson, leikmaður Vals
Knattspyrnukona ársins: Margrét Lára Viðarsdóttir, leikmaður Vals
Íþróttamaður ársins: Margrét Lára Viðarsdóttir, leikmaður Vals
Í öðru sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins: Ólafur Stefánsson, uppalinn í Val
Valdir í heimsliðið í handbolta seint á árinu 2007: Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson, báðir uppaldir í Val.
Lið ársins: Án vafa Valur
Athugasemdir
Amen & haleluja :) hvenær ætlar kristalskúlan að sýna þér restina af árinu 2008. ég er orðinn spenntur
Birkir (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 10:31
besta knattspyrnukona landsbankadeildarinnar 2007: Margrét Lára... varð að bæta þessu við, þetta er svo kaldhæðnislegt allt saman:)
Stebba (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 21:46
Já Stebba. Það mál er náttúrulega leikmönnum í kvennadeildinni til vansa. Spurning um að bæta því við líka... gæti farið illa í einhverja. En ekki eins og að þetta sé eitthvað vinsæl síða
Bárður (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 13:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.