Færsluflokkur: Bloggar
20.2.2007 | 19:47
Ónýtt námslánakerfi
Það er svei mér eitt það erfiðasta í heimi að bóka sig í flug til Bandaríkjanna. Sérstaklega þegar maður á vegabréf sem rennur út í ár. Vissi nokkur að maður þarf að vera með vegabréf sem er í gildi í allavega sex mánuði til að komast til lands frelsisins? Þetta er meiri vitleysan, vitleysan segi ég. Það er líka vitleysa að ekki eitt fyrirtæki sá sig fært að styrkja námsferð fjölmiðlafræðinema til Bandaríkjanna. Nú græða bankarnir ekki lítið á námsmönnum. Ekki þakka þeir fyrir sig, það er nokkuð víst. Þeir geta samt þakkað Sjálfstæðisflokknum, sérstaklega Ólafi G. Einarssyni, fyrrum menntamálaráðherra, sem gerði þeim þann greiða að búa til ónýtt námslánakerfi sem gerir ekki ráð fyrir fyrirframgreiðslu. Í stað þess fá bankarnir viðskipti án þess að hafa nokkuð fyrir því. Námsmenn neyðast til að taka lán á einhverjum fimmtán prósenta vöxtum!!! Ég vona að eitt að fyrsta verkefni nýs menntamálaráðherra eftir kosningar, vonandi úr röðum Samfylkingar eða VG að breyta þessu. Nema að það sé búið að einkavæða Lánasjóðinn. Það væri svo sem dæmigert. Ef ekki lýsi ég eftir þessu málefni sem kosningamáli. Við erum að tala um að nemendur Háskóla Íslands einum eru níu þúsund, þrjú prósent þjóðarinnar. Ég veit ekki hversu mikið Háskólaráð getur gert í þessu máli.
Barcelona-Liverpool er á morgun. Ég get ekki annað en hlakkað til þó bæði þessi lið séu í svipuðu uppáhaldi. Þrátt fyrir það held ég að Liverpool vinni, allavega meðan Börsungar spila eins og fimmti flokkurinn í Reyni Árskógsströnd, með allri virðingu við það ágæta lið. En eins og skáldið sagði, stay tuned. I'm out!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.2.2007 | 18:00
Jafnrétti frá sjónarhóli karlmanns
Ég hef hug á því að verða fyrsti bloggari á Íslandi sem ekki fjallar í löngu máli um Klám og mannsals-ráðstefnuna á Hótel Sögu eða úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hef bara eitt um fyrrnefnda málið að segja, Hótel Saga á að skammast sín og tilraun þeirra til firra sig frá allri ábyrgð er brandari. Hið síðarnefnda, besta lagið vann annað árið í röð. Glæsilegt.
Ég var nú í þessu að ganga út úr tíma í ¨Stjórnun, vinnuskipulagi og vinnumenningu¨. Þar var meðal annars fjallað um stöðu kynja á vinnumarkaðnum. Kennari minn vitnaði í rannsókn Ingólfs V. Gíslasonar á meðal karlmanna í hefðbundnum kvennastörfum. Út úr þeirra rannsókn kom víst út að víða í leikskólum landsins finna karlstarfsmenn fyrir því að þeir séu óvelkomnir í starfið og að þeir fái þau skilaboð að þeir séu ekki á réttum stað og á alveg kolvitlausum tíma. Þarna sé alla vega komin hluti skýringar á fáum leikskólastjórum á Íslandi en aðeins einn karlmaður er í þeirri stöðu miðað við frétt í Fréttablaðinu í morgun. Sjálfur hef ég fundið fyrir þessu á leikskóla einum í Austurbæ Reykjavíkur þar sem ég vann í örfáa mánuði áður en ég þurfti frá að hverfa vegna óviðráðanlegra orsaka í fjórar til sex vikur. Þá hugðist ég halda áfram í þessarri sömu vinnu. Á meðan ég vann þar fékk ég litla sem engar leiðbeiningar frá deildarstjóranum sem var heldur illa við mig miðað við fas hennar. Í eitt skipti heyrði ég leikskólastjórann sjálfann halda því fram að karlmenn séu bara þannig gerðir að þeir ráði verr við starf leiðbeinanda á leikskóla en konur. Þarna var hún að mínu viti að tala niður til þeirrar sérfræðikunnáttu að geta unnið með börnum á leikskóla. Er sú kunnátta bara meðfædd konum? Er leikskólakennaramenntun í KHÍ þá óþörf konum? Eiga þá bara konur að vinna á leikskólum? Hvernig bregðast karlmenn við þessum skilaboðum? Getur verið að þeir fari að trúa því sjálfir og hrökklist úr vinnu? Eftir að ég var orðinn starfshæfur á ný fékk ég þau skilaboð að starf væri laust á þessum leikskóla sem um ræður en ég fengi ekki vinnuna. Ég fékk skýringu á því hvers vegna ég fengi ekki vinnuna. Hún var sú að ég væri karlmaður og deildarstjórinn á þeirri deild sem ég hefði fengið vinnuna hjá vildi ekki fá karlmenn í vinnu til sín. Þetta var sko köld vatnstuska á andlitið, ekki bara mitt andlit heldur andlit jafnréttisbaráttu yfirleitt. Leikskólastjórinn benti mér á að þetta væri eigilega lögbrot og ég gæti kært en ég hafði mig nú ekki í það. Myndi gera það undir eins ef brotið væri svona á mér í dag. Nú er ég jafnréttissinni með öllu sem því inniheldur, þ.e. að vera feministi og vilja að konur hafi sama rétt á sömu vinnu og karlar. En til þess að öllu jafnrétti verði náð verða karlar að fá sama rétt og konur á sömu vinnu. Annars höldum við okkur á eilífum byrjunarreit sem er jú frekar neikvætt að mínu viti. Sögur eins og þessi eru örugglega algengari meðal kvenna en sögur eins og þessi hér hefur fyllilega rétt á sér skyldi maður halda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2007 | 20:28
Golfkylfur og Eistland
Í karíókí-keppni Stúdentaleikhússins um daginn var ítrekið að allir og ég meina allir skyldu syngja í keppninni. Ekki kom fram hvað gert skyldi við þann sem ekki tæki þátt. Ég veit satt að segja ekki hvort Harpa, skemmtunarstjóri, fylgist mikið með heiðursmanninum Craig Bellamy en hún hefði getað tekið sér hann til fyrirmyndar. Haldið þið ekki að hann hafi lamið John Arne Riise með golfkylfu fyrir það að hafa verið beiler í karíókí-keppni Liverpool. Og haldið þið ekki að hann hafi valið það að lemja hann í fótinn. Ætli hann sé tilbúinn fyrir næsta leik? Ætli Riise eigi eftir að hefna sín? Hvaða lag ætli Bellemy hafi sungið? Hvaða lag söng Zenden og Gerrard sem er með þeim á myndinni. Hvaða lag skyldi Stan Collymore syngja ef að hann væri enn í Liverpool. Eru allir Norðmenn beilerar? Ætli Björn Tore Kvarme sé líka beilar? En Stig Inge Björnebye? Kannski er hægt að spurja Ragnhildi Steinunni. Þá getur hún spurt Hauk Inga, kallinn sinn. Hvar skyldi Robbie Fowler standa í þessum málum. Hann spilaði með Leeds. Birkir Már Sævarsson heldur með Leeds. Hann spilar líka með Val eins og Pálmi Rafn Pálmason. KR vildi fá hann. Teitur Þórðarson þjálfar KR. Hann þjálfaði Eistneska landsliðið í knattspyrnu. En nóg er nóg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 18:19
Britney mín
Stutt innskot.
Britney mín Spears hefur ákveðið að taka sig til og krúnurakað sig. Stelpa sem var með henni í tattústofu vestur í LA spurði hana hvers vegna hún hafi nú verið að því. Britney sagðist ekki þola athyglina sem hún fær, sagðist ekki þola að allir vildu snerta hana og vera hluti af lífi hennar. Gott trikk. Nú fær hún örugglega enga athygli. Líkt og Elton John fékk enga athygli þegar hann braust út úr skápnum og Michael Jackson fékk enga athygli fyrir þessa snýtiklúta sína sem hann hafði yfir andlitið á sér í tíma og ótíma. Nú er spurning hvað Lindsey Lohan eða Paris Hilton gera til að losna við athyglina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 16:31
Evróvision og Kastljós
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 17:30
Fyrirbyggjum næringaskort í heiminum...hjá flestum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.2.2007 | 18:15
Markaðsundrið Silvía Nótt Sæmundsdóttir.
Heil og sæl. Ég hef hugsað mér að flytja mig úr set og hefja svokallað moggablogg í stað þess að festast á blog.central.is. Flest blogg á blog.central.is eru annað hvort rituð af vinahópum sem auglýsa djömm eða matarboð á síðum sínum eða tólf ára gamlar dramadrottningar skrifandi svokallaðar ristað brauðs færslur. Að vísu er undantekningin sem sannar reglunnar reyndar stórvinur minn Birkir Már sem enn heldur sér á blog.central.is. En að öðru.
Mesta markaðsundur Íslandssögunnar er komið í ljós. Silvía Nótt sýnir með snilldarlegum hætti að í jafnlitlu samfélagi og viðgengst hér á landi er nóg að banka upp á hjá rétta liðinu og allir vita af því. Á örugglega eftir að ná gullplötusölu. Maður skoðar varla blogg hjá þokkalega þekktu fólki án þess að það bloggi um það að þessi drottning hafi bankað upp á hjá þeim og boðið þeim annað hvort nýja plötu sína eða barsmíðar frá lífvörðum hennar. Ekki nóg með það heldur haldið þið ekki að hún og önnur drottning, Unnur Birna, hafi ekki rölt fram hjá undirrituðum þar sem að hann sat í makindum sínum á Café Paris ásamt Doktor Sigurbirni. Engin kamera eða myndarvél þar á ferð heldur bara tvær vinkonur að hanga saman í bænum til að sýna sig og sjá aðrar. Ágústa Eva er horfin, Silvía Nótt gleypti hana. En þetta var þokkaleg fyrsta færsla á moggabloggi. Ætla ekki að hafa einkennissetningu eins og Steingrímur Sævar í blogginu hans. Bara....bless.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)